Lán með ábyrgð eigenda

Með styrkari fjárhag Orkuveitunnar hefur fyrirtækið í vaxandi mæli getað fengið lán til fjárfestinga eða endurfjármögnunar án þess að eigendur Orkuveitunnar standi í ábyrgðum fyrir lánunum. Með því er dregið úr áhættu sveitarfélaganna – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – af eignarhaldinu.

Frá árslokum 2010 til ársloka 2023 hefur hlutfall fjárhæðar þeirra lána sem hvíla á Orkuveitunni og njóta ábyrgðar eigenda fallið úr 93% í 29% og fjárhæðin úr 209 milljörðum króna í 53 milljarða, sem er lækkun um 75%.

Lán með ábyrgð eigenda og án