Helstu orkugjafar

Orkuveitan vinnur endurnýjanlega orku, rafmagn og heitt vatn til húshitunar, úr jarðvarma og vatnsafli og notar hluta þessarar orku í starfsemi sína. Helstu orkugjafar sem eru nýttir í starfseminni eru rafmagn og heitt vatn og er um 98,1% endurnýjanlega orku að ræða.

Hjá Orkuveitunni eru kortlögð áhrif loftslagsvár á starfsemina því viðnámsþróttur og aðlögunarhæfni veitukerfa í þessa veru hefur bein áhrif á getu fyrirtækisins til að starfa og vera grunnur að lífsgæðum íbúa og atvinnulífs. Sjá nánari umfjöllun um áhrif loftslagsvár í kafla U8 um loftslagseftirlit stjórna og kafla U9 um loftslagseftirlit stjórnenda.

Endurnýjanleg orkukræfni

Orkukræfni er skilgreind sem orkuþörf á hverja einingu af öðrum kennitölum í viðkomandi rekstri, til dæmis framleiðslu, tekjur eða mannafla.

Orkukræfni Orkuveitunnar er mikil, enda þarf mikla orku til að knýja veitukerfi og virkjanir. Nánast öll sú orka sem þessi starfsemi krefst er fengin úr endurnýjanlegum orkugjöfum, það er á móti hverju MJ sem Orkuveitan nýtir af óendurnýjanlegri frumorku eru 856 MJ endurnýjanleg.