Stjórnendur Orkuveitunnar meta og stýra loftslagstengdri áhættu hjá fyrirtækinu og greina stjórn Orkuveitunnar frá þeirri hættu.
Forstjóri Orkuveitunnar fær mánaðarlegar uppfærslur um loftslagstengdan árangur frá umhverfisgyðju Orkuveitunnar. Hlutverk umhverfisgyðju er meðal annars að hafa yfirsýn yfir loftslagstengd málefni. Þetta felur einnig í sér stöðugt eftirlit á árangri Orkuveitunnar gagnvart loftslagsmarkmiðum fyrirtækisins.
Aðgerðir til mótvægis og aðlögunar að loftslagsbreytingum
Orkuveitan hefur greint og metið alvarleika áhrifa vegna loftslagsbreytinga á starfsemi sína og viðeigandi viðbrögð við þeim. Greindir hafa verið möguleikar til aðlögunar að meiri úrkomuákefð, leysingum, tíðari og ýktari sveiflum á hitastigi, ofsaveðri með aukinni eldingatíðni og vindálagi og sjávarborðshækkun. Í því sambandi fylgist vatnsveitan með örveru- og efnamengun í neysluvatni í rauntíma þannig að unnt sé að grípa til forvarna og tryggja gæði þess. Ennfremur leggur hitaveitan mat á eftirspurn eftir heitu vatni til framtíðar og bætta nýtingu þess til að tryggja afhendingaröryggi. Í fráveitunni er horft til spár um sjávarborðshækkun og úrkomuákefðar í áætlanagerð. Auk þess er horft til blágrænna ofanvatnslausna til að veita regnvatni af götum og vegum og hreinsa það áður en það rennur út í ár og vötn; aðgerða sem einnig auka líffræðilega fjölbreytni og bæta borgarumhverfi. Þessar ofanvatnslausnir eru í senn mótvægisaðgerðir og aðlögun vegna loftslagsvár. Í jarðvarmavirkjunum á Hengilssvæðinu er fylgst með og brugðist við álagi á mannvirki þannig að unnt sé að tryggja afhendingaröryggi rafmagns og heits vatns. Öll félög Orkuveitunnar vinna að þróun aðgerðaráætlunar og innleiðingu þessara aðgerða í samstarfi við sveitarfélög, stofnanir, fræðasamfélagið og rannsóknastofnanir eftir því sem við á, sjá viðauka.
Þar sem starfsemi Orkuveitunnar felur í sér byggingu og rekstur innviða, sem gert er ráð fyrir að endist í yfir 50 ár, þarf fyrirtækið að taka tillit til langtíma loftslagsáhættu í fjárfestingum og rekstri sínum.