H-tala er alþjóðleg mælieining fyrir tíðni vinnuslysa. Hún er reiknuð sem fjöldi slysa á hverjar milljón unnar vinnustundir hjá viðkomandi fyrirtæki. Talin eru slys sem leiða til að minnsta kosti eins dags fjarveru frá vinnu. Þau voru fimm árið 2023 hjá Orkuveitunni, tveimur færri en árið áður. Unnar vinnustundir voru 1.096.039. Fjöldi vinnustunda eru samanlagðar unnar stundir á vinnustað og skráðar vinnustundir í heimavinnu.
Fjarveruslys á hverja milljón vinnustunda
Orkuveitan lítur svo á að ekkert verk sé svo mikilvægt að hætta megi öryggi starfsfólks við framkvæmd þess. Stefna fyrirtækisins í öryggis- og heilbrigðismálum (ÖH-stefna) er rýnd árlega af stjórnum félaganna í samstæðunni. Stefnt er að slysalausum vinnustað.
Orkuveitan gerir skýrar kröfur um öryggismál í öllum útboðum og þá kröfu til verktaka í framkvæmdaverkum að öryggisreglum fyrir verktaka sé fylgt. Þá hefur Orkuveitan gefið út Öryggishandbók sem hefur verið starfsfólki Orkuveitunnar og verktökum til reiðu um árabil. Gerð er krafa um að starfsmenn verktaka sæki viðurkennt námskeið í öryggismálum.
Í siðreglum birgja Orkuveitunnar er gerð sú almenna krafa að vinnuumhverfi starfsfólks sé heilsusamlegt, öruggt og í samræmi við lög og að birgir vinni markvisst og stöðugt að öryggis- og heilsumálum starfsfólks.
Björg
Orkuveitan starfrækir tilkynningagrunn sem starfsfólk skráir atvik og ábendingar um tækifæri til umbóta. Skráningarnar eru grunnur umbótastarfs í öryggis- og heilsumálum. Hver og ein tilkynning er tekin til skoðunar og staðfest skal að úrlausn hennar sé lokið. Mikil heimavinna starfsfólks meðan kórónuveirufaraldurinn geisaði skýrir fækkun skráninga á þeim hættum sem við starfsfólki blasa á vinnutíma.
Orkuveitan hefur það markmið að 80% tilkynninga sé lokað innan tiltekins frests. Það markmið hefur ekki náðst hjá öllum félögum.