Löng hefð er fyrir því hjá veitufyrirtækjunum að ráða ungt fólk til sumarstarfa umfram hefðbundna þörf fyrir afleysingar. Ræðst það meðal annars af því að fyrirtækin eiga mörg mannvirki og margar lóðir sem krefjast viðhalds sem best er sinnt að sumarlagi. Jafnframt lítur Orkuveitan svo á að ráðning ungmenna til sumarstarfa gefi þeim innsýn í og fræði þau um starfsemina og veki áhuga þeirra á að koma aftur til starfa hjá fyrirtækjunum síðar.
Orkuveitan og dótturfyrirtækin kaupa að mikla vinnu frá stórum fyrirtækjum á borð við verkfræðistofur og framkvæmdaverktaka. Sumt starfsfólk stærri og smærri verktaka vinnur að verulegu leyti fyrir samstæðuna. Sá hópur hefur ekki verið skilgreindur og Orkuveitan hefur ekki tölulegar upplýsingar um samsetningu hans.