Orkuveitan kappkostar að starfa í samræmi við íslenska vinnulöggjöf og stefna fyrirtækisins í ÖH-málum og starfskjaramálum gengur lengra en löggjöfin á þessum sviðum. Orkuveitan gerir sér grein fyrir hættu á því að verktakar á vegum samstæðunnar eða undirverktakar þeirra fylgi ekki reglum. Í því skyni hefur Orkuveitan meðal annars;
- sett kröfur í útboðsgögnum sem taka til barna- og nauðungarvinnu,
- sett inn heimildarákvæði um riftun samninga við verktaka sem verða uppvísir að brotum á reglum íslensks vinnumarkaðar,
- gert kröfu um að reikningar vegna tiltekinnar aðkeyptrar vinnu megi ekki vera fyrir lengri tíma en rúma sjö tíma á sólarhring nema með leyfi frá Orkuveitunni og
- gert kröfu í verksamningum um að launagreiðslur og tryggingar verktaka og undirverktaka þeirra séu í samræmi við íslensk lög.
Ekkert tilvik var um það á árinu 2023 að grípa þyrfti til ráðstafana samkvæmt þessum ákvæðum.
Alþjóðlegt vottunarkerfi vegna barna- og nauðungarvinnu er ekki fyrir hendi. Orkuveitan á því erfitt með að staðfesta að slíkt fari ekki fram innan allrar virðiskeðju fyrirtækisins, t.d. í kaupum á vöru. Yrði uppvíst um slíkt er að finna riftunarákvæði vegna slíkra brota í öllum útboðsgögnum. Þá liggja fyrir siðareglur birgja Orkuveitunnar og skráð verklag til að bregðast við upplýsingum um ætluð brot á þeim. Þau geta leitt til þess að viðskiptum við viðkomandi birgi verði hætt.