Við gerð sjálfbærniuppgjörs Orkuveitunnar er stuðst meðal annars við leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út í mars 2017 og uppfærðar voru í maí 2019. Leiðbeiningar Nasdaq byggja á ráðleggingum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, Samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er bætt við tilvísunum í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, þar sem það á við, og tekið tillit til laga um breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006, með síðari breytingum.
Stjórn Orkuveitunnar hefur ákveðið að leggja sérstaka áherslu á sex af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í starfsemi samstæðunnar. Framsetning þeirra hér í skýrslunni tekur mið af þeim áherslum. Markmiðin eru:
- #5 Jafnrétti kynjanna
- #6 Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
- #7 Sjálfbær orka
- #12 Ábyrg neysla og framleiðsla
- #13 Aðgerðir í loftslagsmálum
- #14 Líf á landi
Þessi komu einkum að gerð Ársskýrslu Orkuveitunnar 2023: Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar, Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisgyðja Orkuveitunnar, Þorsteinn Ari Þorgeirsson, sérfræðingur í jarðvísindum, Snorri Jökull Egilsson og Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir, sérfræðinar í umhverfis- og loftslagsmálum, Ása Björk Jónsdóttir, sérfræðingur í greiningum, Lilja Björk Hauksdóttir sérfræðingur í samskiptamálum og Magnús Þór Brink Róbertsson, sérfræðingur á fjármálasviði Orkuveitunnar.
Vefun: Overcast.