Á árinu 2022 tók Reykjavíkurborg upp nýja skipan við kjör í stjórn Orkuveitunnar þar sem sérstaklega er horft til að valið sé tiltekið hlutfall óháðra fulltrúa. Með því var skjalfest venja sem hefur verið viðhöfð allt frá árinu 2010 um val fulltrúa í stjórn Orkuveitunnar af hálfu Reykjavíkurborgar.
Stjórn Orkuveitunnar skipa sex manns. Fimm, þar á meðal formaður og varaformaður, eru kjörnir af borgarstjórn Reykjavíkur og einn af bæjarstjórn Akraness. Sveitarstjórn Borgarbyggðar tilnefnir áheyrnarfulltrúa í stjórn sem og stjórn Starfsmannafélags Orkuveitunnar.
Formaður stjórnar Orkuveitunnar má ekki taka að sér önnur störf fyrir fyrirtækið.
Stjórn ræður forstjóra fyrirtækisins, semur starfslýsingu hans og gengur frá starfslokum. Forstjóri annast allan daglegan rekstur fyrirtækisins og fer með eignarhluti í dótturfélögum. Forstjóri Orkuveitunnar má ekki vera í stjórn fyrirtækisins og stjórnarmenn Orkuveitunnar mega ekki sitja í stjórn dótturfélags.
Kveðið er á um verkaskiptingu forstjóra og stjórnar í starfsreglum stjórnar og starfslýsingu forstjóra en forstjóri situr ekki í stjórnarnefndum.
Forstjóri Orkuveitunnar situr ekki í stjórnum dótturfélaga en í þeim skulu þrír fulltrúar vera starfsmenn Orkuveitunnar, þar af a.m.k. einn úr stjórnendahópi Orkuveitunnar. Alla jafna eru stjórnir dótturfélaga skipaðar fimm mönnum, þremur úr starfsliði samstæðunnar og tveimur utanaðkomandi sérfræðingum á starfssviði viðkomandi fyrirtækis.
Hér er litið svo á að fólk sem á sæti í sveitarstjórn eigendasveitarfélaganna sé ekki óháð og það sama á við um það starfsfólk samstæðunnar sem á sæti í stjórnum dótturfélaga.
Stjórnarfólk óháð félögum í samstæðu Orkuveitunnar eða eigendum þeirra
Árið 2023 sátu í stjórn Orkuveitunnar:
- Dr. Gylfi Magnússon, formaður, prófessor í hagfræði og fjármálum við Háskóla Íslands.
- Vala Valtýsdóttir, varaformaður og formaður starfskjaranefndar stjórnar, lögmaður og sérfræðingur í fyrirtækjalögfræði.
- Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, BS í sálfræði og meistaragráða í þjónustustjórnun.
- Skúli Helgason, borgarfulltrúi í Reykjavík og stjórnmálafræðingur.
- Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar á Akranesi og framhaldsskólakennari.
- Þórður Gunnarsson, auðlindahagfræðingur.
Borgarbyggð og Starfsmannafélag Orkuveitunnar eiga áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum. Þeir eru:
- Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar.
- Unnur Líndal Karlsdóttir, formaður Starfsmannafélags Orkuveitunnar.
Stjórn Orkuveitunnar leggur áherslu á gegnsæi í störfum sínum og fundargerðir stjórnarfunda auk fundargagna, sem ekki ríkir trúnaður um, eru öllum aðgengilegar á vef fyrirtækisins. Í fundargerðirnar eru meðal annars skráðar allar ákvarðanir stjórnar og stjórnarmenn hafa rétt á að bóka stuttlega um afstöðu sína til einstakra mála.