Það er stefna Orkuveitunnar að:
- Beita opnum útboðum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum. Í útboðum verði tekið tillit til sjálfbærnisjónarmiða og að hagstæðasta tilboði sé tekið. Að öðrum kosti skal beita öðrum innkaupaaðferðum í samræmi við gildandi lög og reglur.
- Innkaupareglur og innkaupaaðferðir séu skýrar og gagnsæjar.
- Gæta jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni við öll innkaup.
- Við innkaup og rekstur samninga skuli taka tillit til sjálfbærnisjónarmiða, s.s. gæða-, heilbrigðis-, mannréttinda-, umhverfis-, upplýsingaöryggis- og öryggissjónarmiða.
Siðareglur birgja
Skerpt var á sjálfbærnimarkmiðum þessarar innkaupastefnu árið 2020 og á árinu 2021 gaf fyrirtækið út siðareglur fyrir birgja Orkuveitunnar, sem byggðar eru á innkaupastefnunni og tíu grundvallarreglum Global Compact, sem Orkuveitan á aðild að. Samhliða var mótað verklag um viðbrögð Orkuveitunnar við upplýsingum um frávik.
Kröfur samsvarandi siðareglunum er að finna í skilmálum allra útboða á vegum Orkuveitunnar og markmið fyrirtækisins með útgáfu siðareglnanna er að þær sjálfbærnikröfur sem gerðar eru í útboðum nái einnig til smærri birgja.
Í árslok 2023 hafði 121 birgir staðfest að hann hlítti siðareglunum. Að auki er nú bein tilvísun í siðreglurnar í öllum útboðum.
Á árinu 2023 voru 57% innkaupa Orkuveitunnar að undnagengnu útboði. Samsvarandi hlutfall 2002 var 59%, 56% árið 2021 og 61% árið 2020.
Sjálfbærnimat á birgjum Orkuveitunnar
Samhliða sjálfærnimati Reitunar á Orkuveitunni árin 2022 og 2023 var Reitun fengin til að meta stöðu birgja samstæðunnar út frá matslíkani fyrirtækisins. Úrtak birgjanna var upphaflega valið með tilliti til umfangs viðskipta og fjölbreytni vöru og þjónustu sem af þeim er keypt. Markmið matsins var á fá mælingu á það hvernig birgjar standi að vígi í sjálfbærnimálum.
Eins og myndritið að neðan ber með sér er dreifing frammistöðunnar mikil. Almennt stóðu stærri birgjar, sem flestir voru metnir árið 2022, betur en þeir smærri. Fámenn verktakafyrirtæki komu verst út úr matinu. Á árinu 2023 var haldinn fundur með vörubirgjum og þeim gerð grein fyrir heildarniðurstöðu matsins og hverjar væntingar Orkuveitunnar væru. Á fundinum kom fram af hálfu birgja á meðal þeirra og framleiðslufyrirtækjanna að baki þeim stæði yfir talsverð vinna í sjálfbærnimálum, einkum loftslagsmálum.
Dreifing einkunna í sjálfbærnimati Reitunar 2022 og 2023
Kolefnisspor keyptrar vöru og þjónustu
Við mat á tilboðum tekur Orkuveitan tillit til fleiri þátta en verðs og í samræmi við vinnu Orkuveitunnar að loftslagsmálum er sérstök áhersla á að kalla eftir kolefnisspori keyptrar vöru eða þjónustu. Nánar er fjallað um þá vinnu í kafla U1 Losun gróðurhúsalofttegunda.
Keðjuábyrgð og aðgerðir gegn kennitöluflakki
Orkuveitan hefur innleitt keðjuábyrgð í verksamningum í því skyni að standa vörð um réttindi starfsfólks verktaka og undirverktaka þeirra. Verktakamat er byggt á frammistöðu þeirra í öryggismálum, umhverfismálum, gæðum verks og gagnaskilum. Ef frammistaða í verktakamati er óviðunandi er viðskiptum hætt tímabundið.
Ekkert tilvik var á árinu 2023 um að tilboði væri hafnað vegna gruns um kennitöluflakk.