Siðareglur Orkuveitunnar byggja á heiðarleika, sem er eitt af gildum Orkuveitunnar. Siðareglurnar eru skráðar og opinberar og eiga að hjálpa starfsfólki að láta heiðarleika, virðingu og jafnrétti einkenna öll samskipti hvort sem er við viðskiptavini, samstarfsfólk, stjórn, verktaka eða aðra hagsmunaaðila. Þær eru ekki tæmandi og leysa þau sem þær ná til ekki undan þeirri ábyrgð að reiða sig á eigin samvisku þegar siðferðileg álitamál koma upp. Á árinu 2020 var gefinn út Samskiptasáttmáli starfsfólks Orkuveitunnar.
Siðareglur voru fyrst settar fyrir Orkuveituna af stjórnendum árið 2000 og voru yfirfarnar, endurskoðaðar og samþykktar af stjórn Orkuveitunnar á árinu 2017. Stjórn rýnir þær reglulega, síðast í mars 2022. Siðareglurnar eru hluti starfsreglna stjórnar. Þær eru kynntar nýju starfsfólki, eru öllum aðgengilegar og sérstaklega er vísað til þeirra í þeim ráðningarsamningum sem starfsfólk skrifar undir. Að minnsta kosti helmingur starfsfólks hefur skrifað undir ráðningarsamning þar sem vísað er í siðreglurnar.
Telji starfsmaður brotið gegn reglunum eða stendur frammi fyrir siðferðilegu álitamáli getur hann leitað til yfirmanns eða samstarfsmanns sem hann treystir. Telji starfsmaður brot á reglunum bitna á sér, svo sem vegna eineltis eða áreitni, getur hann einnig leitað beint til ytri ráðgjafa og við tekur skráð ferli, þar sem gætt er nafnleyndar, sé þess óskað.
Hjá Orkuveitunni er skráð verklag um meðferð mála þegar ætla má að starfsmaður eða stjórnandi hafi brotið gegn reglum fyrirtækisins eða hafi orðið uppvís að sviksemi í starfi. Verklagsreglan er öllu starfsfólki aðgengileg. Vakni grunur um brot ber að tilkynna það næsta yfirmanni eða innri endurskoðanda fyrirtækisins sem ber að upplýsa um það en gæta trúnaðar við meðferð slíkra upplýsinga, þar með talið að gæta leyndar um nafn tilkynnanda. Innri endurskoðandi starfar beint fyrir stjórn og er því óháður gagnvart stjórnendum og starfsfólki fyrirtækjanna innan samstæðunnar.
Ekkert tilvik var á árinu 2023 þar sem grunur vaknaði um mögulega sviksemi.
Stjórnendur Orkuveitunnar, framkvæmdastjórar og -stýrur og forstöðumenn bera ábyrgð á innra eftirliti hver á sínu sviði. Gæða- og upplýsingastjórnun er eining innan Orkuveitunnar sem ber ábyrgð á að innri eftirlitskerfi séu virk. Gæðakerfi Orkuveitunnar njóta óháðrar vottunar ytri aðila. Orkuveitan fylgir stöðlum Samtaka innri endurskoðenda um framkvæmd innri endurskoðunar. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar gegnir hlutverki innri endurskoðanda samstæðunnar. Innan Orkuveitunnar starfar regluvörður sem hefur eftirlit með upplýsingagjöf til Kauphallar og Fjármálaeftirlits.