Í þessari samþættu Ársskýrslu samstæðu Orkuveitunnar er gerð grein fyrir stöðu og þróun þeirra sjálfbærniþátta sem er að finna í leiðbeiningum Nasdaq og Viðskiptaráðs auk þátta sem Orkuveitan telur einnig mikilvæga. Orkuveitan lítur því á Ársskýrslu hvers árs sem sjálfbærniskýrslu fyrirtækisins.
Þessi skýrsla er gefin út samhliða ársreikningi Orkuveitunnar. Á vefjum fyrirtækjanna innan samstæðunnar er jafnframt að finna ýmsar upplýsingar um umhverfismál, fjármál og starfsmannamál sem uppfærðar eru oftar en árlega.
Auk Ársskýrslu skilar Orkuveitan margvíslegum gögnum til opinberra eftirlitsaðila í samræmi við starfsleyfi fyrirtækjanna í samstæðunni. Þar eru umfangsmest ýmis gögn um auðlindanýtingu hvers árs. Með aðild að ýmsu samstarfi skilar Orkuveitan einnig opinberum skýrslum um ýmsa sjálfbærniþætti starfseminnar. Þar má nefna:
- Framvinduskýrslur í loftslagsmálum til samræmis við kröfur Science Based Targets initiative.
- Framvinduskýrslur vegna útgáfu grænna skuldabréfa
- Skýrslur til Climate Disclosure Project
- Framvinduskýrslur verkefna sem skráð hafa verið á vefinn heimsmarkmidin.is
- Skýrslur til Global Compact
UFS áhættumat
Tvö matsfyrirtæki leggja mat á frammistöðu Orkuveitunnar hvað varðar umhverfis-, samfélags- og stjórnháttaþætti starfseminnar. Slíkt mat er hluti lánshæfismats Moody's og íslenskir fjárfestar hafa fengið matsfyrirtækið Reitun til að leggja slíkt mat á frammistöðu samstæðunnar.
Niðurstaða mats Reitunar árið 2023 var að „Orkuveita Reykjavíkur stendur sig afburða vel í UFS mati Reitunar líkt og síðustu ár.“
Matskýrslur Reitunar og Moody's eru viðfestar en á árinu 2022 var einungis gefin staðfesting á fyrra mati af hálfu Moody's.