Orkuveitan er á meðal stærstu fyrirtækja landsins og frammistaða fyrirtækisins í umhverfismálum skiptir því máli. Starfsemin er vottuð samkvæmt ISO 14001 staðlinum. Orkuveitan gefur reglubundnar skýrslur um umhverfismál til heilbrigðiseftirlita, Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar sem jafnframt eru leyfisveitendur og sinna eftirliti með starfseminni, sjá yfirlit yfir starfsleyfi í viðauka.
Að hugsa vel um umhverfið er „hópíþrótt“ því tvinna þarf saman verk- og hugvit til að létta umhverfissporið. Í köflum sem varða umhverfismál er gerð grein fyrir helstu aðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið, auðlindir, vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni eins og kostur er og bæta um leið lífsgæði viðskiptavina Orkuveitunnar.