Helstu varasömu efnin í notkun hjá Orkuveitunni eru asbest, grunnefni sem nýtt er í einangrunarfrauð, klór, sýrur og basar, suðugas og jarðhitagös, olíur og leysiefni. Árið 2023 var töluvert notað af skaðlegum efnum líkt og undanfarin ár. Slys vegna notkunar á varasömum efnum eru fátíð og var ekkert slys tilkynnt vegna þessa árið 2023.
Árið 2020 var gert átak í að fækka varasömum efnum og tókst að fækka þeim úr um 900 í rúmlega 200. Ennfremur var ráðist í umbætur vegna geymslu þeirra, flokkun og förgun ásamt því að auka vitund starfsfólks á mikilvægi þessa málaflokks með fræðsluefni. Dæmi um þetta er að þar sem geymd eru varasöm efni vegna ræstinga og í fráveitunni hafa verið settir QR kóðar á öll varasöm efni til að auðvelda aðgengi starfsfólks að öryggisblöðum sem lýsa persónuvörnum og fyrstu viðbrögðum ef slys ber að höndum.